Skilmálar og skilyrði

Home   Skilmálar og skilyrði

Upplýsingar um fyrirtækið
Rammastúdíó ehf, Ármúla 20, 108 Reykjavík, sími 581-1384, rammastudio.is, rammastudio@rammastudio.is

Rammastúdíó ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru:
Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Velja má um að sækja vöru sem keypt er á netinu í verslunina eða fá hana senda og er hún þá send með Íslandspósti. Kaupandi greiðir Íslandspósti fyrir flutninginn þegar vara er sótt í pósthús. Brothættar vörur eru merktar sem slíkar og greitt sérstaklega fyrir það hjá Íslandspósti, sem gefur tryggingarvernd samkvæmt skilmálum Íslandspósts. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Rammastúdíó ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Rammastúdíó ehf til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Hægt er að greiða fyrir rekjanlegt bréf.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur:
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Kaupandi getur þá skipt vörunni fyrir aðra vöru, fengið inneignarnótu hjá Rammastúdíó ehf eða fengið vöruna endurgreidda. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Verð á vöru og sendingarkostnaður:
Öll verð í vefverslun eru með 24% virðisaukaskatti. Kaupandi greiðir sendingakostnað þegar hann sækir vöruna hjá Íslandspósti. Sendingakostnaður getur verið mismunandi í hverjiu tilfelli fyrir sig.

Vinsamlegast athugið að allar upplýsingar á vefnum eru með fyrirvara um prentvillur, verðbreytingar og birgðastöðu. Birgðastaða og verð eru uppfærð reglulega og er möguleiki á misræmi er til staðar sem ekki er hægt að taka ábyrgð á. Þannig geta verð breyst eftir uppfærslur t.d. vegna nýrra birgða á lager.

Gölluð vara:
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er óskað. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Trúnaður (Öryggisskilmálar):
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Lög og varnarþing:
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.

Rammastúdíó ehf

Kt: 710310-0330

Ármúla 20

108 Rvík

s. 581-1384

rammastudio@rammastudio.is